Óflokkað
Uss, engin framistaða
Sub-Categories
- Engir flokkar
Category Posts
Sumarfrí - 18 júní 2010
Þrem vikum, mörgum andvökunóttum, hundruðum kaffibolla og kílóavís af sælgæti eru prófin loksins búin. Og þar sem prófin eru búin hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera við sjálfa mig og þarafleiðandi er íbúðin tandurhrein, hjólið smurt, búið að búa til mat fyrir 10 manna veislu og fara í sturtu fjórum sinnum [...]
Read Full Post »Dagurinn í dag - 21 maí 2010
Í dag er föstudagur. Danir elska föstudaga!
Ég vaknaði snemma í morgun til að fara frítt í sund í háskólanum. Sundlaugin var mjög köld svo ég fór bara í gufubað í staðinn. Í skólanum fengum við að kíkja inn í seinustu líkin og fundum meðal annars lungnakrabbamein, nýrnasteina á stærð við tíkall, græna gallblöðru og pínulitla [...]
Upptekin - 18 maí 2010
Ég er ekki búin að vera sérlega dugleg við að blogga upp á síðkastið þar sem ég hef verið upptekin við að kryfja litla gamla konu.
Lyktin í krufningaherberginu var töluvert verri í dag en í gær, og ég komst að því mér til mikillar skelfingar að það er gat á hægra stígvélinu mínu. Einnig, er [...]
Pavel - 12 maí 2010
Ég ákvað að rannsaka Pavel betur í gær og komst að því að hann hefur verið að villa á sér heimildir. Hann er í rauninni kvenmaður og heitir Pavlova!
Annars verða Íslendingar sennilega glaðir að heyra að hér rignir allan daginn.
Í kvöld fór ég á fyrirlestur um skurð- og fæðingarlækningar. Í pásunni notaði ég svo tækifærið [...]
Pavel, nýjasti vinur minn - 26 apríl 2010
Í síðustu viku fengu allir læknisfræði- og kírópraktíknemendurnir að fara niður í kjallara til að sækja beinakassa.
Í kjallaranum var margt forvitnilegt að sjá, meðal annars fjöldinn allur af kössum og beinagrindum og ein líkkista merkt danskri konu fæddri í kringum 1930. Á kistunni stóð meðal annars nafn og heimilisfang.
Við máttum velja um hvort við vildum [...]
Gamla fólkið - 23 mars 2010
Um daginn var ég í vinnunni (eins og næstum því alltaf) þegar ein af gömlu dömunum nær taki á erminni minni og dregur mig til sín þar til nef mitt nam við nef hennar. Svo starði hún á mig í dágóða stund og sagði loks:
”Þú ert með falleg gleraugu, þau fara þér vel. Og góðar [...]
Stjörnuspáin mín - 16 jan. 2010
Fékk þessa stjörnuspá og hef að sjálfsögðu ákveðið að taka mark á henni. Enda tveir dagar í fyrsta próf:
Tvíburinn
Þú þarft á meiri hvíld og einveru að halda. Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur.
Og hananú! Held ég leggi mig…
Alein - 12 jan. 2010
Nú á ég svo sannarlega að vera djúpt sokkin í muninn á rauðum og gulum beinmerg fyrir prófin mín og þar af leiðandi er tilvalin stund til að gera allt annað. Til dæmis ryksuga hnífaparaskúffuna, baka muffins og blogga.
Það er helst í fréttum af Elmilundsveginum að Tyrkinn minn flutti út og snéri aftur til sinna [...]
Hefnd - 09 des. 2009
Í gær var ég í vinnunni og náði ekki að svara símanum þegar hann hringdi rétt fyrir klukkan 21. Þegar ég fékk svo pásu fór ég og kíkti á númerið, sem ég kannaðist ekki við, og ákvað að hringja til baka, það gæti jú vel verið að þetta hafi verið einhver úr bekknum að hringja [...]
Read Full Post »Fréttir - 31 ág. 2009
Ég flutti út á þriðjudaginn með mín leyfilegu 20 kg af fötum og skóm og hárgeli, þið vitið, og síðan þá hef ég lært að gefa stefnuljós með höndunum þegar ég hjóla, hvernig maður segir sogblettur á dönsku, drukkið gammeldansk, séð pulp fiction i fyrsta skiptið og séð lík.
Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag var kynnisprógram [...]