Ísland
Sub-Categories
- Engir flokkar
Category Posts
Persónuleikaröskun - 29 mars 2010
Fór að hugsa um hvernig manneskja ég var í Indónesíu vs. hvernig manneskja ég er hér, og held ég hafi komist að því að ég sé með persónuleikaröskun á háu stigi eða hafi einfaldlega verið að ímynda mér þetta líf sem ég lifði.
Nokkur dæmi á muninum á IndóSöru og Dönsku/ÍslenskuSöru:
IndóSara drekkur te, ekki kaffi
IndóSara notar [...]
Genetik - 11 feb. 2010
Nú erum við byrjuð í erfðafræðitímum og ef það veldur ekki heimþrá þá veit ég ekki hvað. Það er nefnilega alltaf verið að fjalla um litlu eyjuna norður í hafi þar sem allir íbúarnir eru einræktaðir, hjólbeinóttir búrar sem hafa engin samskipti haft við umheiminn í 1000 ár og eru því kjörnir sem rannsóknarefnir mann- [...]
Read Full Post »Árið 2009 - 31 des. 2009
Já, það er óhætt að segja að það hafi verið nánast ómögulegt að toppa árið 2008, en þrátt fyrir það er kannski ágætt að líta yfir farinn veg og sjá hvort ég hafi nú ekki gert eitthvað skemmtilegt í ár:
Nám:
Í janúar byrjaði ég í líffræði í Háskóla Íslands, og kláraði það eina önn með ágætis [...]
Tæknilegir örðugleikar - 23 nóv. 2009
Við vorum í fyrirlestir í dag um stofnfrumur og stofnfrumurannsóknir.
Fyrirlesarinn var einhver sérfræðingur í málinu sem var búinn að búa til rosalegt powerpoint show fyrir okkur en af einhverjum ástæðum var hann með stillingu á tölvunni sinni þannig að alltaf þegar hann fékk tölvupóst sendann í pósthólfið sitt kom upp gluggi með fyrirsögn póstsins og [...]
Neðanjarðarhagkerfið - 25 okt. 2009
Í Odense þar sem ég bý eru tvö hagkerfi.
Hið fyrra er ofanjarðar, öllum opið, stjórnað af ríkisstjórninni, opinberar stofnanir fylgjast með viðskiptum og sjá til þess að allt fari vel fram. Peningar í skiptum fyrir vöru og þjónustu, skattar, gjöld og styrkir, nokkurn veginn það sama og í flestum öðrum löndum.
Seinna hagkerfið er aðeins fyrir [...]
Í dag… - 08 júlí 2009
Í dag var ég í Krónunni að versla í kaffið fyrir alla mennina mína (góðir ostar, vínber, melónur, súkkulaði, kaffi, te og kökur, það eru svona 2-4 á skrifstofunni á dag…).
Þar sem ég stóð í biðröðinni með melónuna undir vanga og fullar hendur var ég að fylgjast með tveim krökkum gúffa í sig úr nammibarnum. [...]
Niðurlæging - 26 júní 2009
Niðurlæging og Dauði!
Í dag gerðist það sem ég hef alltaf óttast. Í mínu mesta sakleysi sat ég í vinnunni og las Séð og Heyrt (Klara í Nylon hefur loksins losnað við teinana og Magnús Skarphéðinsson pantaði sér pizzu á Devitos) þegar yfirmaðurinn kom til mín. Hann bað mig um greiða. Ég játti því. Þetta virtist [...]
Fréttir - 19 júní 2009
Vikan byrjaði á því að ég fékk mér aðra vinnu svo aðra hverja viku er ég að vinna á skrifstofunni frá 8-4 og svo í hinni vinnunni 4-7. Húrra! Þarf maður hvort sem er að sofa?
Ég byrjaði líka loksins á fjarnáminu mínu og komst að því að þrátt fyrir að vera mjög léleg í eðlisfræði [...]
Í Þjóðskrá - 21 maí 2009
Í Þjóðskrá þar sem ég var stödd til að færa lögheimili mitt aftur á Selfoss í gær. Ég er ein á skrifstofunni með einni maddömulegri afgreiðslukonu sem passar að ég nái í rétt eyðublað (blátt og hvítt) og fylli allt rétt út:
Sara: Uhm… ég er búin að fylla út allt þetta eyðublað, nema hérna aftast [...]
Opið bréf - 09 apríl 2009
Opið bréf til allra sem fara í bíó:
Kæri bíógestur,
takk fyrir að koma í bíó til að njóta menningar og lista. Það virðist þó vera einhver misskilningur í gangi um samskipti okkar á milli. Vinsamlegast takið eftirfarandi til greina.
Ég hef ekki séð allar myndirnar sem við erum að sýna. Þó að ég vinni í kvikmyndahúsi ber [...]