Danmörk
Sub-Categories
- Engir flokkar
Category Posts
Pavel, nýjasti vinur minn - 26 apríl 2010
Í síðustu viku fengu allir læknisfræði- og kírópraktíknemendurnir að fara niður í kjallara til að sækja beinakassa.
Í kjallaranum var margt forvitnilegt að sjá, meðal annars fjöldinn allur af kössum og beinagrindum og ein líkkista merkt danskri konu fæddri í kringum 1930. Á kistunni stóð meðal annars nafn og heimilisfang.
Við máttum velja um hvort við vildum [...]
Gafnakrot - 13 apríl 2010
A klosettinu i skolanum er buid ad hengja upp mida:
kæru samnemendur med litningana XY, synid nu tillitssemi og setjid klosettsetuna nidur fyrir kvenfolkid
Undir er buid ad krota:
Tad er ekki sjalfur Y litningurinn heldur einungis SRY genid sem veldur einkennum karlkynsins.
Aha… takk fyrir leidrettinguna :p Stundum er erfitt ad umgangast bara svona gafad folk…
Persónuleikaröskun - 29 mars 2010
Fór að hugsa um hvernig manneskja ég var í Indónesíu vs. hvernig manneskja ég er hér, og held ég hafi komist að því að ég sé með persónuleikaröskun á háu stigi eða hafi einfaldlega verið að ímynda mér þetta líf sem ég lifði.
Nokkur dæmi á muninum á IndóSöru og Dönsku/ÍslenskuSöru:
IndóSara drekkur te, ekki kaffi
IndóSara notar [...]
Undarlegt símtal - 12 mars 2010
Ég hef nú fengið minn skammt af furðulegum upphringingum á dönsku síðan ég flutti hingað. Eins og símaperrinn sem hringdi reglulega í svona mánuð.
Í dag fékk ég símtal sem var skrítnara en nokkuð annað sem ég hef fengið. Það hljómaði einhvern veginn svona:
(Sit á lesstofunni þegar titringur frá síma byrjar að enduróma um allan salinn. [...]
Háskólamenntun - 25 feb. 2010
Í skólanum í gær fengum við heimavinnu. Venjulega snýst heimavinnan okkar um að teikna fjölskyldutré með tilliti til arfgengra sjúkdóma, hanna tilraunir til að kanna fósturgalla eða litningabreytingar eða skrifa um rannsóknaraðferðir.
Í gær var verkefnið öðruvísi. Við áttum að velja okkur stað, til dæmis lest, rútu, fjölfarna götu, verslun eða veitingastað. Þar áttum við að [...]
Endurkoma Hr. London - 23 feb. 2010
Glöggir lesendur kannast eflaust við hinn miður klóka hr. London sem ég minntist á í færslum frá febrúar, apríl og desember 2008.
Hann var ferðafélagi minn í tæpar tvær vikur á Indlandi og hýsti mig svo í London á leið minni heim.
Hann ákvað í byrjun febrúar að Danmörk væri ferðamannaparadís vetrarins (miður klókur-þar hafiði það) og [...]
Update - 01 feb. 2010
Jæja,
þá er ég komin með nýjan húsfélaga, og í þetta skipti er það rúmensk stelpa. Og hún talar ensku! Eeeen, hún kann ekki að hjóla!
Ég er besti sambýlingur í heiminum. Rökstuðningur: ég bakaði súkkulaðibitakökur í dag og ég á ryksugu, brauðrist og handþeytara!
Skólinn er byrjaður aftur en ég hlakka mest til að byrja í arabísku.
Ég [...]
Árið 2009 - 31 des. 2009
Já, það er óhætt að segja að það hafi verið nánast ómögulegt að toppa árið 2008, en þrátt fyrir það er kannski ágætt að líta yfir farinn veg og sjá hvort ég hafi nú ekki gert eitthvað skemmtilegt í ár:
Nám:
Í janúar byrjaði ég í líffræði í Háskóla Íslands, og kláraði það eina önn með ágætis [...]
Jól - 30 des. 2009
Gleðileg jól snúllurnar mínar!
Ég komst til Íslands rétt fyrir jólin eftir hörkupúl við að draga koffortið mitt gegn um snjóskafla og yfir ísilagðar götur Odense. Ég var búin að gera ráð fyrir seinkun á öllum stöðum, sem svo varð ekkert úr, svo ég endaði á því að mæta á flugstöðina mörgum, mörgum klukkutímum fyrir flug. [...]
Of lengi í Danmörku? - 12 nóv. 2009
Hvernig veit maður hvort maður hefur verið of lengi í Danmörku?
Maður hjólar á djammið
Bjór klukkan 14 á föstudegi er normið
Maður tekur ekki með sér veskið þegar maður fer til læknis
Matur vex á trjám
Epli og gulrætur eru máltíð
Jarðskjálftar eru eitthvað sem er bara í vísindaskáldsögum
Sömuleiðis jöklar
Sömuleiðis heitir pottar
Eftir viku rigningu: Ah, það er komið haust
Maður veit [...]