Undirbúningur »

Undirbúningur

Hvad tarf madur ad gera adur en madur fer i heimsreisu?

Sub-Categories

  • Engir flokkar

Category Posts

Lögð af stað - 11 jan. 2008

Ég er lögð af stað, eða svo gott sem.  Það er búið að pakka öllu í töskuna en mamma er reyndar alltaf að bæta við hlutum, til dæmis vettlingum sem hún telur að muni koma mér vel á Indlandi.  Það er víst líka rigning á Englandi svo ég tek með regnhlíf í boði Laufeyjar [...]

Read Full Post »


London á morgun - 10 jan. 2008

Það er komið að því, á morgun verð ég í London.  Flugið mitt er um hálf átta leytið svo ég verð komin út rétt rúmlega 10, lendi á Stanstead svo ég þarf að taka eihverjar lestir niður í bæ þar sem ég fer á ferðaskrifstofuna að ná í miðana mína.  Jane Brown hringdi einmitt í [...]

Read Full Post »


Snyrtitaska - 08 jan. 2008

Ég reyni og reyni að takmarka mig við það aaaallra nauðsynlegasta, og hér er það: snyrtitaskan mín, gæti næstum verið án alls annars… Þið verðið að athuga að ég vakna ekki bara svona dásamleg á morgnana, það þarf að hafa fyrir þessu

Púður og sólarpúður

Húðgel og krem

Tannbursti og tannkrem í boði mömmu hennar Heiðrúnar [...]

Read Full Post »


Meira í töskuna - 07 jan. 2008

Fjórar nætur til stefnu og ég held ég verði að setja eitthvað meira í töskuna mína.  Það heppnaðist ekkert allt of vel að taka myndir af fötunum sem ég verð með þannig að það verður bara listi.
Hérna er það sem komið er:

2x síðar buxur, svartar og kaki
1x kvartbuxur, svartar
1x stutt svart pils
3x stuttermabolir
1x kvartermabolur
1x sumarkjóll
1x [...]

Read Full Post »


Í dag… - 05 jan. 2008

Í dag komst ég á mbl.is
Hérna er lítið sýnishorn af bókunum sem ég ætla að taka með… gæti samt þurft að takmarka mig eitthvað nú þegar ég fer að hugsa um það, sérstaklega þar sem húsið mitt rúmar bara 70-90 lítra…

Lonely Planet Nepal og Lonely Planet India, aldrei fara neitt án þess að [...]

Read Full Post »


Nýja heimilið mitt :) - 04 jan. 2008

Nú er bara vika í brottför og ég er búin að eignast nýtt heimili sem heitir Karrimor.  Nýja húsið mitt rúmar 70-90 lítra af dóti og er svo tæknilegt að mér verður aldrei of heitt á öxlunum.  Á nýja heimilinu mínu eru líka sérstök hólf fyrir flöskur, aukaherbergi sem hægt er að renna af, tvö [...]

Read Full Post »


Hlutir sem fá ekki að koma með… - 02 jan. 2008

Fyrst ég er búin að skrifa svona mikið um allt dótið sem ég tek með mér í ferðina ákvað ég að setja inn eina mynd af því sem fer EKKI með mér í ferðina…

Jú þetta er sorglegt, allir háhæluðu skórnir mínir, skargripirnir, krem, bækur, geisladiskar, málningardót, hárnæring… Allt skilið eftir heima :/ En það er [...]

Read Full Post »


Undirbúningur II - 31 des. 2007

Nú er ég komin í svaka pakkistuð og alveg að fara yfir um.  Tók mig líka til í morgun og henti fullt af drasli sem ég mun aldrei koma til með að sakna.  Það er alveg ótrúlegt hvað maður geymir mikið af algerlega tilgangslausum hlutum sem maður hefur engin not fyrir.  Það fer líka kassi [...]

Read Full Post »


Undirbúningur I - 30 des. 2007

Ég hef ákveðið að setja inn myndir af því sem fer í bakpokann fyrir ferðina, það eru allir svo forvitnir um það hvernig ég ætla að lifa af í heilt ár með innan við 12 kíló af dóti Það er hægt… vona ég…
Byrja á byrjuninni, öll lyfin sem ég þarf að taka með mér.  [...]

Read Full Post »