Sara Ferðalöng

Barcelona
Ó ég vildi að ég gæti skrifað um allt sem ég hef séð í Barcelona; um skreyttu og bognu svalahandriðin, um Gaudi, um tapas og um gothískar kirkjur með steindum gluggum. Þetta er svo falleg borg, það eru skreytingar allstaðar, allstaðar list, allstarðar litir og mósaík og fallegir hlutir.

Sumstaðar er svona óþekktarlist falin í borginni. Til dæmis tók sig einhver til og bjó til veggflísar með myndum af karakterum úr tölvuleiknum space invaders og faldi þær hér og þar í borginni. Ég er búin að finna þrjár hingað til. Leitin heldur áfram.

Um daginn fór ég á ströndina, valdi þá fámennustu til að sóla mig á og viti menn, það var nektarströnd.  Þar var fullt af gömlum mönnum með vel tönuð typpi. Á meðan ég var að líta í kringum mig ákváðu tveir þeirra að stunda einhverskonar líkamsrækt sem fólst í því að baða út öllum öngum (Öllum!) og sveifla líkamanum til hægri og vinstri til skiptis svo djásnin slógust til og frá. Íhugaði að taka myndband. Hætti svo við.

Hér borða allir kvöldmat klukkan 10 eða 11 á kvöldin, það verður erfitt að snúa þessum rythma við þegar ég fer í skólann eftir viku.

Í gær fór ég í pípuklúbb Barcelona. Þar er ómögulegt að komast inn ef maður þekkir ekki einhvern vel tengdan innfæddan. Klúbburinn er á þriðju hæð við torg fullt af túristaveitingastöðum og minjagripaverslunum. Maður dinglar bjöllu á ómerktri hurð og bíður eftir að vera hleypt inn, áður fyrr þurfti lykilorð. Klúbburinn er gríðarstór og reykfylltur og ég var svo heppin að þegar ég kom var swingband að byrja að spila. Þeir voru argentínskri, með einum serba. Aðalgítarleikarinn var með síðar svartar krullur, langa kóngulóarfingur og sígarettu í munnvikinu sem hann saug eins og enginn væri morgundagurinn. Hann var svo upptekinn af spilamennskunni að askan hrundi af yfir gítarinn og hann tók ekki eftir því fyrr en hann var byrjaður að reykja filterinn, en þá spýtti hann sígarettunni út úr sér án þess að missa úr takti svo hún lenti glóandi á gólfinu fyrir neðan sviðið, rétt við fætur áhorfenda.

Ég elska Barcelona.

Sumarfrí
Þrem vikum, mörgum andvökunóttum, hundruðum kaffibolla og kílóavís af sælgæti eru prófin loksins búin. Og þar sem prófin eru búin hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera við sjálfa mig og þarafleiðandi er íbúðin tandurhrein, hjólið smurt, búið að búa til mat fyrir 10 manna veislu og fara í sturtu fjórum sinnum í dag og mér leiðist.

Tveggja mánaða sumarfrí er nú full gróft, ég er eiginlega að vonast til að hafa fallið á seinasta prófi svo ég hafi eitthvað að gera…

Dagurinn í dag
Í dag er föstudagur. Danir elska föstudaga!

Ég vaknaði snemma í morgun til að fara frítt í sund í háskólanum. Sundlaugin var mjög köld svo ég fór bara í gufubað í staðinn. Í skólanum fengum við að kíkja inn í seinustu líkin og fundum meðal annars lungnakrabbamein, nýrnasteina á stærð við tíkall, græna gallblöðru og pínulitla þind. Svo fékk einn tutorinn líka að prófa nýju beinasögina og saga eina höfuðkúpu í sundur. Það var mjög gaman.

Eftir skóla ætlaði ég að vera rosalega mikið dugleg að læra og var nýsest niður þegar vinkona mín sendi mér skilaboð um að hún væri tilbúin með slackline í almenningsgarði hér rétt hjá. Svo ég dreif mig á hjólið og lærði að ganga á línu. Ég náði 3,5 skrefum þegar best lét og kom heim blá, marin, grútskítug og sæl. Ekki einusinni hitaskúrinn sem ég lenti í á leiðinni var mér til ama.

Svo er ég líka búin að kaupa frisbídisk og badmintonspaða. Vegna þess að ég er að læra fyrir próf. Og vegna þess að sólin bara skín og skín og skín og ég held að lífið gæti varla verið betra.

Upptekin
Ég er ekki búin að vera sérlega dugleg við að blogga upp á síðkastið þar sem ég hef verið upptekin við að kryfja litla gamla konu.

Lyktin í krufningaherberginu var töluvert verri í dag en í gær, og ég komst að því mér til mikillar skelfingar að það er gat á hægra stígvélinu mínu. Einnig, er að íhuga að gerast grænmetisæta þar til vikan er á enda.

Pavel
Ég ákvað að rannsaka Pavel betur í gær og komst að því að hann hefur verið að villa á sér heimildir. Hann er í rauninni kvenmaður og heitir Pavlova!

Annars verða Íslendingar sennilega glaðir að heyra að hér rignir allan daginn.

Í kvöld fór ég á fyrirlestur um skurð- og fæðingarlækningar. Í pásunni notaði ég svo tækifærið og tók á móti einum fyrirbura sem sat fastur í fæðingadúkkunni og svo fékk ég prófa að skera nokkrar blöðrur úr móðurlífi með hátæknilegum töngum, minimyndavél og fjarstýrðu dóti.

Ég er að velta því fyrir mér hvað venjulegt fólk eiginlega gerir í frítíma sínum…

Pavel, nýjasti vinur minn
Í síðustu viku fengu allir læknisfræði- og kírópraktíknemendurnir að fara niður í kjallara til að sækja beinakassa.

Í kjallaranum var margt forvitnilegt að sjá, meðal annars fjöldinn allur af kössum og beinagrindum og ein líkkista merkt danskri konu fæddri í kringum 1930. Á kistunni stóð meðal annars nafn og heimilisfang.

Við máttum velja um hvort við vildum fá plastbein eða alvöru bein nema ef maður vildi heldur fá plastbein þá var maður tekinn afsíðis og þjarmað hressilega að manni þangað til maður samþykkti að taka alvöru bein. Það kom ekki fyrir mig því ég ákvað strax að fá alvöru!

Beinin sem ég fékk er rúmlega hálf beinagrind sem er orðin vel slitin og notuð. Ég ákvað strax að þetta væri tékkneskur maður sem héti Pavel. Um leið og ég fékk Pavel ákvað ég að fara með hann heim og raða honum saman á gólfinu. Pavel er bara með hægri útlimi og hægra sett af rifbeinum.

Ég komst líka að því að Pavel er mjög sennilega kona því hann var bara örlítið hærri en ég. Nema Pavel sé frá 17. öldinni, þá hefur hann bara verið temmilega hávaxinn karlmaður.

Mér þykir vænt um Pavel. Ég skoða hann oft. Svo passa ég að læsa kassanum vel og vandlega á næturna svo ekkert sleppi nú út…

Gafnakrot
A klosettinu i skolanum er buid ad hengja upp mida:

kæru samnemendur med litningana XY, synid nu tillitssemi og setjid klosettsetuna nidur fyrir kvenfolkid

Undir er buid ad krota:

Tad er ekki sjalfur Y litningurinn heldur einungis SRY genid sem veldur einkennum karlkynsins.

Aha… takk fyrir leidrettinguna :p Stundum er erfitt ad umgangast bara svona gafad folk…

Persónuleikaröskun
Fór að hugsa um hvernig manneskja ég var í Indónesíu vs. hvernig manneskja ég er hér, og held ég hafi komist að því að ég sé með persónuleikaröskun á háu stigi eða hafi einfaldlega verið að ímynda mér þetta líf sem ég lifði.

Nokkur dæmi á muninum á IndóSöru og Dönsku/ÍslenskuSöru:

IndóSara drekkur te, ekki kaffi

IndóSara notar chilisósu á franskarnar, ekki tómatsósu

IndóSöru finnst franskar ekkert spes, hrísgrjón eru betri

Salmonella er lífsstíll, ekki sjúkdómur

Þegar IndóSara fer að versla eyðir hún í mesta lagi 1000 krónum, og finnst það mikið

IndóSara fer í moskuna og svo á munaðarleysingjaheimili með núðlur og ávexti, DanskaSara fer í mollið og svo á pizzastað og fær sér hamborgara

IndóSara stendur sig ekkert alltof vel í skólanum, en guð minn góður hún er streetsmart!

DanskaSara æfir fimleika, IndóSara æfir tennis

DanskaSara hjólar í skólann á morgnana, IndóSöru er ekið þangað af einkabílstjóra fjölskyldunnar

Ef DanskaSara nennir ekki að elda sér kjúkling endar hún á því að borða bara hafragraut, IndóSara eldar ekki, hún pantar bara mat hjá vinnukonunum

IndóSara borðar mat beint af trjánum. Það gerir DanskaSara líka. ÍslenskaSara hefur smakkað barrnálar en fannst þær ekkert spes

DanskaSara gengur í stígvélum og IndóSara í sandölum

DanskaSara fer í frí til Árhús eða Íslands, IndóSara fer í frí til Bali

IndóSara er hlynnt skírlífi fram að hjónabandi, DanskaSara… tja…

DanskaSara býr í 12 fermetra herbergi með fátækum rúmenskum vefsíðuhönnuði, IndóSara býr í risastórri höll með sex manna fjölskyldu, 5 manna þjónustuliði, 3 kennurum og 30 drengjum á heimavist

DanskaSara ætlar að verða læknir, IndóSara hafði ekki hugmynd um hvað hún ætlaði að gera við líf sitt

Indónesía virkar hreinlega eins og einhverskonar kanínuhola niður í Undraland þar sem klukkur ganga afturábak og brjálaðir hattarar drekka te úr botnlausum bollum…

Gamla fólkið
Um daginn var ég í vinnunni (eins og næstum því alltaf) þegar ein af gömlu dömunum nær taki á erminni minni og dregur mig til sín þar til nef mitt nam við nef hennar. Svo starði hún á mig í dágóða stund og sagði loks:

”Þú ert með falleg gleraugu, þau fara þér vel. Og góðar tennur! Þú ættir að giftast milljónamæringi, mundu það, og ekki fara lægra! Falleg gleraugu og góðar tennur!,,

Og hananú! Sjálfboðaliðar?

Undarlegt símtal
Ég hef nú fengið minn skammt af furðulegum upphringingum á dönsku síðan ég flutti hingað. Eins og símaperrinn sem hringdi reglulega í svona mánuð.

Í dag fékk ég símtal sem var skrítnara en nokkuð annað sem ég hef fengið. Það hljómaði einhvern veginn svona:

(Sit á lesstofunni þegar titringur frá síma byrjar að enduróma um allan salinn. Eftir nokkra stund og fjölmörg reiðiblik frá einbeittum námsmönnum fatta ég að þetta er síminn minn. Hleyp út)

Sara: Halló?

Maður: Já hæ! Þetta er ég. Heyrðu það var verið að láta mig lausan.

Sara: Ha?

Maður: Já, sko þú vissir af því var það ekki? Það var verið að sleppa mér, geturu sótt mig?

Sara: Ha? Sleppa þér? Hvað ertu að tala um?

Maður: (hissa) Nú úr fangelsi! Þú vissir að ég hefði verið í fangelsi!

Sara: Uhm… vitlaust númer…

Maður: (Hlær hátt) Nú jæja, afsakaðu það, bless bless!

Voooó! Pælið í því að vera nýsloppinn úr fangelsi og hringja í vitlaust númer, talking about bad luck sko!