Um daginn var ég að labba heim úr skólanum og lenti á rauðu ljósi fyrir framan háskólabíó. Ég beið eftir græna kallinum en hinum megin við götuna stóð maður sem var líka að bíða eftir að fara yfir. Um leið og græni kallinn byrjaði að blikka fór ég yfir en manni stóð bara þétt upp [...]
Ég held að fólkið í íbúðinni fyrir ofan mig séu örugglega innanhúsarkítektar. Ég hef nú reyndar aldrei séð þau en þau eru klárlega mjög áhugasöm um að húsgögnin séu á góðum stöðum og þau séu reglulega færð til tilbreytingar. Þau eru líka rosalega atorkusöm. Stundum klukkan þrjú um nótt, snemma á laugardagsmorgnum, eftir skóla eða [...]
Í dag er 12. janúar og því ár og dagur síðan ég lagði af stað í heimsreisuna mína góðu.
Ég er formlega flutt inn en fyrsta verk mitt var að brjóta spegil. Síðast braut ég spegil þegar ég var sjö ára, en á milli 7-14 ára aldurs hef ég sennilega farið í gegnum eitthvað ólukkuskeið þó [...]
Jæja, nú er ég formlega orðin Reykjavíkurmær og flutt inn til frænku minnar. Reyndar er allt dótið mitt í tösku á ganginum og ég sjálf á vindsæng í stofunni þar sem herbergið mitt losnar ekki fyrr en eitthvað aðeins seinna, en ég hef nú klárlega séð það verra.
Ég er líka byrjuð í háskólanum og fyrsti [...]
Það eru bara allir hérna alltaf að tala um peninga svo ég ákvað að telja saman hvað margar tegundir af peningum hafa farið í gegnum hendurnar á mér á árinu 2008.
Íslensk króna
Sterlingspund
Indversk rúpía
Pakistönsk rúpía
Nepölsk rúpía
Thai baht
Riel og bandarískur dollar í Kambódíu
Dong og bandarískur dollar í Víetnam
Singapore dollar
Rúpíur í Indónesíu
Ástralskur dollar
Nýsjálenskur dollar
Fijidollar
Kanadadollar
Þetta eru samtals 15 tegundir [...]
Það er búið að taka sinn tíma að aðlagast því að vera ekki á ferðinni. Ég hef því tekið upp nokkuð annarlegar svefnvenjur. Fyrstu dagana eftir að ég kom heim var ég svo þreytt að ég svaf eiginlega bara meirihluta sólarhringsins. Svo komu jólin og ég hafði ekki undan að fara á kósýkvöld, fjölskylduboð, afmælisveislur, [...]