Keppni lokið

Ég held það komi engum á óvart að ég hafi gefið mig eftir tæpa viku og vaskað skömmustulega upp. Reyndar verður keppnin endurtekin bráðlega (þegar hvorug nennir að vaska upp, einmitt núna ætti ég að vera að læra svo mikið að ég er alltaf að vaska upp) og þá verður eitthvað lagt undir. Ég veit [...]

Read Full Post »

Keppni

Við sambýlingurinn erum í keppni um það hvað við getum haldið lengi út án þess að þvo upp. Í hádeginu borðuðum við til dæmis pizzuna okkar af pappírsþurrkum því allir diskarnir eru óhreinir og drukkum kók úr bollum. Ég held samt að ég muni tapa, mig er byrjað að klæja í fingurna því mig langar [...]

Read Full Post »

Húsmóðir

Í dag kom ég heim úr skólanum, fór í búðina, eldaði hafrakökur með hnetum og rúsínum, fór í yoga pilates tíma og skellti svo í eina skýrslu. Þegar frænka kemur heim úr vinnunni er maturinn yfirleitt rétt ókominn á borðið og um daginn bjó ég til túnfisksalat. Frá grunni. Svo set ég í þvottavél, þríf [...]

Read Full Post »

Næstum í útlöndum

Í gær var ég í íslensku bíói að horfa á ítalska óperu um skosku heiðarnar sungna af rússneskum söngvurum í Metropolitan óperunni í New York. Það var magnað.
Í dag fer ég á kínverska menningarhátíð í Háskólanum og borða mexícanskar tortillur í kvöldmat.

Read Full Post »

Sturta

Í dag er ég búin að fara þrisvar í sturtu. Ég ætlaði samt bara í eina.
Í efnafræðitilraun áttum við að blanda t-bútanalkóhóli með saltsýru í flösku sem hefur ventil öðrum megin og tappa hinum megin. Svo þurfti reglulega að snúa flöskunni öfugt og hleypa yfirþrýstingnum úr flöskunni svo hún spryngi ekki. Því miður var ég [...]

Read Full Post »

Ég hef verið að leita að uppruna mjög skringilegrar lyktar í ísskápnum mínum. Í ferlinu hef ég fundið appelsínu sem ég var búin að gleyma að ég ætti, eina lekandi gúrku, lax frá því í fyrra og nokkrar tómar fetaostkrukkur. Ég hef hinns vegar ekki fundið út hvaðan lyktin kemur og mun halda leitinni áfram.
 
Í [...]

Read Full Post »