Árshátíð

Á föstudaginn var vinnustaðarárshátíð sem var einmitt haldin á vinnustaðnum mínum. Því hvað gerir fólk sem vinnur í kvikmyndahúsi þegar það á frían dag? Það fer í bíó.
Við Frænkan vorum smekklega seinar (fashionably late, krakkar) sem þýðir að allir voru orðnir mjög pirraðir þegar við loks mættum með salat og kartöflugratín (sem Frænkan keypti, setti [...]

Read Full Post »

Vikan mín

Síðustu skrif virðast hafa farið fyrir brjóstið á nokkrum lesendum. Ég vil því leiðrétta hér með að Magni var ekki fullur á Queen tónleikunum síðasta fimmtudag. Og karlar með sítt rautt hár eru ennþá skrítnir  stórglæsilegir í mínum augum.
Á morgun er komið að stóra nemendaerindinu mínu í plöntulífeðlisfræði og þar sem hópfélagi minn ákvað að [...]

Read Full Post »

Humar og Drottningin

Á fimmtudaginn var verklegur tími í dýrafræði og viðfangsefni dagsins frosinn humar. Eftir að hafa kroppað meltingarkirtlana úr, misst hjartað í vaskinn, klippt í sundur vélindað og potað í heilann var ekkert eftir nema halinn. Kennarinn mælti með því að taka halana með sér heim og elda þá, og fátækum námsmanni fannst það ekki amalegt. [...]

Read Full Post »

Vandræðalegt:

Vandræðalegt þegar maður er búinn að neyða foreldra sína til að keyra til Reykjavíkur til að fara með mann í Bónus og borga fyrir vistir vegna þess að maður tímir ekki að borga fyrir mat, og hitta þar einhvern sem er með manni í tímum og er að versla fyrir sjálfan sig. Og viðkomandi sér [...]

Read Full Post »