Niðurlæging

Niðurlæging og Dauði!
Í dag gerðist það sem ég hef alltaf óttast. Í mínu mesta sakleysi sat ég í vinnunni og las Séð og Heyrt (Klara í Nylon hefur loksins losnað við teinana og Magnús Skarphéðinsson pantaði sér pizzu á Devitos) þegar yfirmaðurinn kom til mín. Hann bað mig um greiða. Ég játti því. Þetta virtist [...]

Read Full Post »

Fréttir

Vikan byrjaði á því að ég fékk mér aðra vinnu svo aðra hverja viku er ég að vinna á skrifstofunni frá 8-4 og svo í hinni vinnunni 4-7. Húrra! Þarf maður hvort sem er að sofa?
Ég byrjaði líka loksins á fjarnáminu mínu og komst að því að þrátt fyrir að vera mjög léleg í eðlisfræði [...]

Read Full Post »

Af spínati og hvítlauk

Í gær tók yfirsjálf mitt yfir og ákvað að ég skyldi elda kvöldmatinn. Það er einungis möguleiki vegna þess að hræætan hann faðir minn er fjarverandi. Ég elda nefnilega ekki kjöt. Ekki kjúkling því ég er svo hrædd við salmonellu, ekki svínakjöt því ég er svo hrædd við bandorm og ekki fisk því ég kann [...]

Read Full Post »

Tenzin Gyatso

Í dag kemur að því að ég fæ að berja augum einn frægasta mann okkar tíma. Hinn 14. Dalai Lama er trúarleiðtogi Tíbeta og talinn vera endurholdgun fyrrum Dalai Lama sem eru meistarar Búddisma. Ekki nóg með það að vera trúarleiðtogi og fyrirmynd meira en 6 milljón manns er hann einnig friðarverðlaunahafi Nóbels fyrir það [...]

Read Full Post »