Ég elska þegar fólk kemur á bókasafnið og kaupir frímerki, rekur út alla tunguna svo hún nemur við hökuna og nuddar frímerkinu vel og lengi upp úr munnvatninu þangað til þau eru orðin gersamlega gegnblaut.
Frímerki eru sko í munnbitastærð svo maður þurfi ekki að vera allur á röngunni við að bleyta þau…
Kona kemur inn með unga stúlku í hjólastól. Starfsmaður (ég) felur tímarit sem starfsmaður var að lesa og býður góðan daginn. Nokkru seinna koma kona og stúlka að afgreiðsluborði með bækur til að fá lánaðar.
Kona: Heyrðu, hún getur kannski bara fengið hjá ykkur skírteini? Er það ókeypis fyrir hana eða?
Starfsmaður: Uhm… Já ég held það [...]
Í dag var ég í Krónunni að versla í kaffið fyrir alla mennina mína (góðir ostar, vínber, melónur, súkkulaði, kaffi, te og kökur, það eru svona 2-4 á skrifstofunni á dag…).
Þar sem ég stóð í biðröðinni með melónuna undir vanga og fullar hendur var ég að fylgjast með tveim krökkum gúffa í sig úr nammibarnum. [...]