Ég flutti út á þriðjudaginn með mín leyfilegu 20 kg af fötum og skóm og hárgeli, þið vitið, og síðan þá hef ég lært að gefa stefnuljós með höndunum þegar ég hjóla, hvernig maður segir sogblettur á dönsku, drukkið gammeldansk, séð pulp fiction i fyrsta skiptið og séð lík.
Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag var kynnisprógram [...]
Mer fannst svo erfitt ad finna eitthvad ad skrifa um a siduna mina heima svo eg akvad ad pakka bara nidur i toskuna mina og fljuga til Danmerkur.
Svo eg er komin til Odense a Fjoni og byrjud i laeknanami.
Og hananu!
Um daginn var ég að ræða við eina konuna í bókhaldinu og talið barst að einhverri köku sem henni fannst svo góð og þar sem ég var að hætta í vikunni ákvað hún að drífa sig í að baka hana og gefa mér að smakka.
Í kaffitímanum var ég búin að þeyta rjóma og setja diska [...]
Var með vin minn frá Emúríkunni í heimsókn um daginn. Dæmi um það sem honum fannst merkilegt:
1. Börn í barnavögnum fyrir utan verslanir
2. Sömuleiðis hundar í bandi fyrir utan verslanir
3. Að þegar ég fann 2000 kall fjúkandi á gangstéttinni hljóp ég á eftir tveim stelpum sem voru fyrir framan mig og spurði hvort þær hefðu [...]