Eftir að hafa íhugað (og hætt við) að læra tyrknesku höfum við sambýlingurinn verið að prófa ýmsar aðferðir til samskipta.
Hún kom til dæmis með vinkonu sína í heimsókn um daginn og sú er heldur betri í ensku en virðist hafa lært málið aðallega í formi ýmissa frasa og eða titla á vinsælum sönglögum.
Svo þegar þær [...]
Eftir að hafa verið á nánast stanslausu flakki síðan ég var sautján ára er loksins komið að því að setjast að. Vegna fyrra lífsmunsturs hafa komið upp ýmis vandamál í hinu nýja daglega lífi mínu. Þetta lýsir sér til dæmis í tregðu við einföldustu hluti, til dæmis að kaupa meira í matinn en því sem [...]
Jæja, maður er nú aðeins farinn að verða þreyttur á þessari fjandans bongóblíðu hérna! Það er bara 25 stiga hiti upp á hvern dag og ekki ský á himni.
Og ég sem var að kaupa mér rándýrt regnfatasett!
Ég er nú loks flutt inn í íbúðina mína þar sem ég bý með tyrkneskri stelpu sem er frekar [...]
Þar sem íbúðin sem Aldís og Sigurjón búa í er geypistór (40 fermetrar) og við klárlega ekki nógu mörg öll fjögur bættust tveir Íslendingar í hópinn. Þetta eru ferðalangar á eldgömlum, ryðguðum húsbíl að byrja ferð um Evrópu.
Þannig að: Aldís og Sigurjón í herberginu sínu, ég á einum sófa, Hjalti á öðrum og drengirnir tveir [...]