Við vorum í fyrirlestir í dag um stofnfrumur og stofnfrumurannsóknir.
Fyrirlesarinn var einhver sérfræðingur í málinu sem var búinn að búa til rosalegt powerpoint show fyrir okkur en af einhverjum ástæðum var hann með stillingu á tölvunni sinni þannig að alltaf þegar hann fékk tölvupóst sendann í pósthólfið sitt kom upp gluggi með fyrirsögn póstsins og [...]
Hvernig veit maður hvort maður hefur verið of lengi í Danmörku?
Maður hjólar á djammið
Bjór klukkan 14 á föstudegi er normið
Maður tekur ekki með sér veskið þegar maður fer til læknis
Matur vex á trjám
Epli og gulrætur eru máltíð
Jarðskjálftar eru eitthvað sem er bara í vísindaskáldsögum
Sömuleiðis jöklar
Sömuleiðis heitir pottar
Eftir viku rigningu: Ah, það er komið haust
Maður veit [...]
Í dag kom maður í heimsókn í íbúðina mína sem vildi spjalla við mig um Biblíuna. Svo spurði hann hvort ég ætti mér einhverja trú.
Ég sagði svo vera og sneri mér aftur að tilbeiðslunni, þ.e. skólabókunum.
Í mínum huga er málið svona: Það er ástæða fyrir því að allar skólabækurnar mínar eru endurútgefnar með nýjustu þekkingu [...]