Fékk þessa stjörnuspá og hef að sjálfsögðu ákveðið að taka mark á henni. Enda tveir dagar í fyrsta próf:
Tvíburinn
Þú þarft á meiri hvíld og einveru að halda. Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur.
Og hananú! Held ég leggi mig…
Nú á ég svo sannarlega að vera djúpt sokkin í muninn á rauðum og gulum beinmerg fyrir prófin mín og þar af leiðandi er tilvalin stund til að gera allt annað. Til dæmis ryksuga hnífaparaskúffuna, baka muffins og blogga.
Það er helst í fréttum af Elmilundsveginum að Tyrkinn minn flutti út og snéri aftur til sinna [...]