Í skólanum í gær fengum við heimavinnu. Venjulega snýst heimavinnan okkar um að teikna fjölskyldutré með tilliti til arfgengra sjúkdóma, hanna tilraunir til að kanna fósturgalla eða litningabreytingar eða skrifa um rannsóknaraðferðir.
Í gær var verkefnið öðruvísi. Við áttum að velja okkur stað, til dæmis lest, rútu, fjölfarna götu, verslun eða veitingastað. Þar áttum við að [...]
Glöggir lesendur kannast eflaust við hinn miður klóka hr. London sem ég minntist á í færslum frá febrúar, apríl og desember 2008.
Hann var ferðafélagi minn í tæpar tvær vikur á Indlandi og hýsti mig svo í London á leið minni heim.
Hann ákvað í byrjun febrúar að Danmörk væri ferðamannaparadís vetrarins (miður klókur-þar hafiði það) og [...]
Nú erum við byrjuð í erfðafræðitímum og ef það veldur ekki heimþrá þá veit ég ekki hvað. Það er nefnilega alltaf verið að fjalla um litlu eyjuna norður í hafi þar sem allir íbúarnir eru einræktaðir, hjólbeinóttir búrar sem hafa engin samskipti haft við umheiminn í 1000 ár og eru því kjörnir sem rannsóknarefnir mann- [...]
Jæja,
þá er ég komin með nýjan húsfélaga, og í þetta skipti er það rúmensk stelpa. Og hún talar ensku! Eeeen, hún kann ekki að hjóla!
Ég er besti sambýlingur í heiminum. Rökstuðningur: ég bakaði súkkulaðibitakökur í dag og ég á ryksugu, brauðrist og handþeytara!
Skólinn er byrjaður aftur en ég hlakka mest til að byrja í arabísku.
Ég [...]