Í dag kom maður í heimsókn í íbúðina mína sem vildi spjalla við mig um Biblíuna. Svo spurði hann hvort ég ætti mér einhverja trú.
Ég sagði svo vera og sneri mér aftur að tilbeiðslunni, þ.e. skólabókunum.
Í mínum huga er málið svona: Það er ástæða fyrir því að allar skólabækurnar mínar eru endurútgefnar með nýjustu þekkingu á tveggja til fjögurra ára fresti. Ég myndi ekki lesa frumulíffræðibók frá því árið 1500. Og ef einhver heldur því fram að til séu einhverjar æðri staðreyndir sem eru sannar á hvaða tíma sem er í hvaða landi sem er: þetta sögðu þeir líka þegar jörðin var í laginu eins og pönnukaka og sólin var á sporbaug utan um Vatikanið.
Í öðrum fréttum: Rebekka og Dröfn komu í heimsókn til mín á föstudaginn. Rebekka frá Íslandi með lakkrísreimar og tópas, Dröfn frá Árósum. Til að gera langa sögu stutta komst nýi blandarinn minn loks í notkun og við skemmtum okkur mjög vel.
Svo var kinky fest á Rasmus Rask kollegiinu í gær. Þetta er ein stærsta veisla ársins svo við Selfyssingarnir (og einn Flúði) drifum okkur í dansgallann. Fólk var að taka þemanu mis-alvarlega; við mættum einni léttklæddri hjúkrunarkonu, manni í jakka og engum buxum, engli og hóp af kvenfólki í misefnismiklum nærfötum.
En, við stoppuðum stutt og fórum heim aftur í súkkulaðiköku og að horfa á hnefaleika. Hvern hefði grunað að litli svarti gaurinn myndi vinna rússneska tröllið?
mér þykir vænt um þig sara mín
haha, góður
alveg sammála með biblíuna 
Hey girl,
Just checking up on you… sounds to me like Denmark is treating you quite fine… all the best and keep on blogging… you crack me up at times… I promise to read your blogs at home and not in the school library. I wouldn’t want people to get the wrong impression ; you know, misinterpret my laughter in front of the screen for an early stage of insanity :-).
Anyway girl, have fun and keep on keeping it real