Hvernig veit maður hvort maður hefur verið of lengi í Danmörku?
- Maður hjólar á djammið
- Bjór klukkan 14 á föstudegi er normið
- Maður tekur ekki með sér veskið þegar maður fer til læknis
- Matur vex á trjám
- Epli og gulrætur eru máltíð
- Jarðskjálftar eru eitthvað sem er bara í vísindaskáldsögum
- Sömuleiðis jöklar
- Sömuleiðis heitir pottar
- Eftir viku rigningu: Ah, það er komið haust
- Maður veit hvar allir helstu hjólaloftkassarnir eru í bænum
- Maður stoppar reglulega og pumpar í dekkin sín
- Maður vinnur ekki með skóla, maður fær bara borgað frá ríkinu fyrir að vera í námi
- Gúmmístígvél með sokkabuxum og pilsi = fullkomlega eðlilegur klæðnaður
- Sundlaugar eru við frostmark
- Maður kann að gera við hjól sem er sprungið á
- Maður smyr nesti á morgnana áður en maður fer í skólann
- Múrsteinshús eru ekki krúttleg, þau eru venjuleg
- Allir gaurar eiga þröngar gallabuxur og nota allt of mikið af geli
- Allir hittast alltaf á barnum
- Maður talar upphátt við sjálfan sig a dönsku
ertu ekki bara á númer 1.
haha, já svona er námsmannalífið í DK sem sagt í hnotskurn
en gaman 