Við vorum í fyrirlestir í dag um stofnfrumur og stofnfrumurannsóknir.
Fyrirlesarinn var einhver sérfræðingur í málinu sem var búinn að búa til rosalegt powerpoint show fyrir okkur en af einhverjum ástæðum var hann með stillingu á tölvunni sinni þannig að alltaf þegar hann fékk tölvupóst sendann í pósthólfið sitt kom upp gluggi með fyrirsögn póstsins og nafni sendanda.
Fyrst fékk hann tvö skeyti um jólahlaðborð sem hann á að mæta í í desember og eitt bréf um einhvern fund. Það var aðeins flissað í salnum enda hálfkjánalegt. Svo korteri fyrir lok tímans kom upp gluggi með:
Sender: Mikael Petersen
Subject: Swingerclub igen på fredag?
Ekki furða að við höfum öll gersamlega tryllst af hlátri!
Í öðrum fréttum:
Á föstudaginn var frí í skólanum svo ég sat heima að læra. Klukkan korter í fjögur heyrðist rosalegur hávaði úr portinu sem glugginn minn snýr að og ég byrjaði að bölva iðnaðarmönnum í sand og ösku.
Eftir nokkrar mínútur fór mér samt að finnast þetta dáldið grunsamlegt. Hér vinnur enginn svona lengi á föstudögum, sérstaklega ekki iðnaðarmenn!
Og viti menn, þegar ég kíkti út um gluggann var ungur maður í hettupeysu að reyna að brjóta upp glugga nágranna míns með kúbeini.
Ég barði á rúðuna hjá mér og öskraði á náungann sem leit á mig og hljóp svo í burtu.
Batman hvað?
Ævintýralegt að heyra af kennsluaðferðum í Danmörku:)
Ekki að spyrja að þessum hettupeysum.
GÓÐUR!
haha, swingerclub :p hehe, já ég er ekki hissa að þið hafið farið að hlæja 

en hvenær kemuru heim elskan ?