Í gær var ég í vinnunni og náði ekki að svara símanum þegar hann hringdi rétt fyrir klukkan 21. Þegar ég fékk svo pásu fór ég og kíkti á númerið, sem ég kannaðist ekki við, og ákvað að hringja til baka, það gæti jú vel verið að þetta hafi verið einhver úr bekknum að hringja út af jólaboðinu sem er á fimmtudaginn eða eitthvað þess háttar.
Svo ég hringdi til baka, kynnti mig og spurði hver hefði hringt. Hinum megin á línunni heyrðist ekkert nema lágvært más. Ég bað viðkomandi að tala örlítið hærra, enn heyrðist bara más. Eftir japl, jaml og fuður og þrábeiðni mína um hærri málróm sagði kauði loks:
,,(muml, más, hvísl) Sjúgðu hann!´´Svo ég lagði rólega á.
Og nú verð ég að viðurkenna að það sem kemur næst er einstaklega barnalegt, ég skammast mín næstum því fyrir að hafa lagst svo lágt. Ég legg það alls ekki í vana minn að gera svona lagað og mæli engan veginn með því.
En ég var með símanúmerið hans, og eitthvað varð ég nú að gera.
Svo ég fór á dating.dk og bjó til prófíl fyrir hávaxna, granna og íðilfagra konu sem hafði áhuga á eldri karlmönnum og klúrum símasamtölum. Og svo skrifaði ég símanúmerið hans undir. Hah!
Fullkomlega ástæðulaust fyrir þig að skammast þín, vertu stolt.
Það þykir víst ekki gott að hefna sín en í þessu tilviki finnst mér að það hljóti að hafa verið þess virði. Vonandi lætur mannfj…. sér þetta að kenningu verða.
10 rokkstig.
Þú ert fyndin Sara mín:)
(en gæti perrinn ekki hafa átt ömmu sem býr hjá honum og svo hringir dónaliðið og amma svarar í símann og…..?)