Gleðileg jól snúllurnar mínar!
Ég komst til Íslands rétt fyrir jólin eftir hörkupúl við að draga koffortið mitt gegn um snjóskafla og yfir ísilagðar götur Odense. Ég var búin að gera ráð fyrir seinkun á öllum stöðum, sem svo varð ekkert úr, svo ég endaði á því að mæta á flugstöðina mörgum, mörgum klukkutímum fyrir flug. Þar var ég heppin að vera með skólabækurnar í handfarangrinum ![]()
Comments RSS
Leave a Reply