Já, það er óhætt að segja að það hafi verið nánast ómögulegt að toppa árið 2008, en þrátt fyrir það er kannski ágætt að líta yfir farinn veg og sjá hvort ég hafi nú ekki gert eitthvað skemmtilegt í ár:
- Nám:
Í janúar byrjaði ég í líffræði í Háskóla Íslands, og kláraði það eina önn með ágætis árangri.
Sumarfríið var nýtt til að taka áfanga í eðlis- og stærðfræði, mér til mikils ama. Það gekk þó ágætlega.
Í ágúst byrjaði ég svo í læknisfræði í fæðingarbæ H.C. Andersen í Danmörku. - Vinna:
Byrjaði árið atvinnulaus, en það rættist fljótlega úr því.
Fyrst var ég að vinna í Háskólabíói, sem sérlegur poppafgreiðslumaður og miðasölustúlka.
Næst fékk ég sumarvinnu á Búnaðarsambandi Suðurlands þar sem ég hellti upp á kaffi af mikilli list.
Með vinnunni á BSSL var ég líka að vinna á bókasafninu á Selfossi.
Þar sem það var ekki nóg var ég einnig skúringadama kvölds og helgar. Ekki furða að það sé atvinnuleysi í þessu landi, en það ætti að lagast núna.
Í Baunalandi fékk ég vinnu á elliheimili og sem hálauna barnapía. - Íþróttir:
Eftirtaldar íþróttir stundaði ég í lengri eða skemmri tíma á árinu:
Yoga pilates, skokk, magadans, afródans, body combat, blandaðir fimleikar, salsa, hjólreiðar, yoga og karlafimleikar.
Og í Danmörku telst bjórdrykkja einnig með sem íþrótt. Þjóðaríþrótt. - Sambýlingar:
Byrjaði árið í faðmi foreldranna.
Flutti svo inn með frænkunni í Reykjavík og átti þar mjög skrautlega þrjá mánuði.
Eftir sumarið flutti ég til Danmerkur og bjó fyrstu þrjár vikurnar með þrem öðrum í 40 fermetra íbúð í anda fátækra Íslendinga.
Flutti svo í íbúð og deildi klósetti og baði með einkar skítsælum og næturgöltrandi Tyrkja sem þvoði eldhúsborðin með hráum kjúklingum og skvetti vatni um gólf og veggi. - Ástarmálin:
Ha?
Hefði átt að gerast lesbía þegar þess var kostur… - Annað:
Byrjaði að læra á gítar hjá Ungverja í Danmörku.
Var nær dauða en lífi eftir misheppnaða efnafræðitilraun.
Stöðvaði innbrotsþjóf.
Lærði að hjóla um með vikuinnkaup, pakka af klósettpappír, skólatösku og heimilistæki allt í einu.
Lærði að meta eplaskífur, flödebollur, glögg og dönskukennslu í grunnskólum.
Gleðilegt nýtt ár! Megi 2010 verða ennþá betra.
Og takið eftir því hvernig ég minntist ekki einu sinni á IceSave…
Ekki tiltakanlega tilbreytingarsnautt. Áramótakveðja úr norðlenskum snjó og frosti.
glæsilegt ár elskan
til hamingju með það og það verður gaman að sjá hvernig 2010 verður hjá þér 
kysskyss
hahahah nr 5 já eila!!!