Jæja,
þá er ég komin með nýjan húsfélaga, og í þetta skipti er það rúmensk stelpa. Og hún talar ensku! Eeeen, hún kann ekki að hjóla!
Ég er besti sambýlingur í heiminum. Rökstuðningur: ég bakaði súkkulaðibitakökur í dag og ég á ryksugu, brauðrist og handþeytara!
Skólinn er byrjaður aftur en ég hlakka mest til að byrja í arabísku.
Ég notaði fríið mitt í síðustu viku til að vinna (stórt niðurgangstilfelli!), skoða tvær kirkjur og eitt safn, læra að búa til hummus, baka nokkrar mismunandi uppskriftir af muffins og horfa á sjónvarp. Aðallega horfa á sjónvarp. Það var indælt.
hehe….þarf ekki að læra að hjóla áður en maður fær að læra ensku ? svona eins og stæ 103 kemur á undan 203……
Hlýtur að skoðast sem fötlun í Danmörku.
Þú verður að kenna henni að hjóla, ekki spurning.