Í skólanum í gær fengum við heimavinnu. Venjulega snýst heimavinnan okkar um að teikna fjölskyldutré með tilliti til arfgengra sjúkdóma, hanna tilraunir til að kanna fósturgalla eða litningabreytingar eða skrifa um rannsóknaraðferðir.
Í gær var verkefnið öðruvísi. Við áttum að velja okkur stað, til dæmis lest, rútu, fjölfarna götu, verslun eða veitingastað. Þar áttum við að koma okkur fyrir með penna og skrifblokk og fylgjast með fólki í 15 mínútur. Við áttum að skrifa niður allt sem við sáum og okkur datt í hug.
Svo ég lagði leið mína í mollið (hentugt því mig bráðvantaði einmitt mintugrænt naglalakk) og setti mig í miðjuna. Um leið og ég tók upp skriffærin fór fólk að smástara á mig, laumulega þó, því enginn vill vera staðinn að því að glápa. Það voru aðallega börn sem horfðu opinmynnt á mig án þess að skammast sín neitt.
Hér er lítill hluti af því sem ég tók eftir:
- Menn ganga að meðaltali hraðar en konur. Mun hraðar.
- Flestir eru í svörtum yfirhöfnum.
- Danskar stelpur eru oft klæddar svokölluðum UGG stígvélum.
- Pör hafa oft auka kvenmann meðferðis.
- Karlar hafa tilhneigingu til að halda á pokum kvennanna sem þeir eru með (hér geri ég ráð fyrir að þeir hafi ekki sjálfir verslað sér neitt í Vero Moda og nærfataverslunum).
- Það fór enginn inn í Friis Company í 15 mínútur.
- Maður með tvö börn starir inn í verslun á meðan annað barnið hleypur manískt um með risastóra plastskeið í munninum (hér íhugaði ég að skerast í leikinn og bjarga barninu frá meiðslum en fannst svo meira spennandi að halda rannsókn áfram og sjá hvað skeði).
- Furðulegar hárgreiðslur eiga oft samleið með furðulegum fatastíl.
- Kona gengur með manni en beygir skyndilega af leið til að þjóta inn í búð, maður tekur ekki eftir og talar við sjálfan sig í 20 metra áður en hann uppgötvar kvenmannshvarfið.
- Ungt fólk sem gengur eitt er oftast upptekið í símanum.
Er þetta nógu langt til að teljast fullnægjandi heimaverkefni?
wahahaha! Mér finnst ekkert skritið að það hafi enginn farið inn i friis comp. fo** dýr verslun!
Eeeen vildi bara láta þig vita að ég og björgvin ætlum til dk í júlí, hvar verður þú þá, kemuru nokkuð heim í sumar eða…? Er ekki ódýrara að vinna úti?
Oog vildi líka bara láta þig vita að ég kýki reglulega hér inn til að fá fréttir:)
hahaha, áhugavert!
Eitt sem ég fór að velta fyrir mér við lesturinn. Ætli menn gangi almennt hraðar en konur, eða ganga þeir hraðar þegar þeir eru í verslunarmiðstöðvum?