Um daginn var ég í vinnunni (eins og næstum því alltaf) þegar ein af gömlu dömunum nær taki á erminni minni og dregur mig til sín þar til nef mitt nam við nef hennar. Svo starði hún á mig í dágóða stund og sagði loks:
”Þú ert með falleg gleraugu, þau fara þér vel. Og góðar tennur! Þú ættir að giftast milljónamæringi, mundu það, og ekki fara lægra! Falleg gleraugu og góðar tennur!,,
Og hananú! Sjálfboðaliðar?
hahaha, þá veistu það
gamla fólkið veit hvað það syngur
Það eru pottþétt einhverjir hér í Kambódíu sem eiga milljón riel og vilja giftast þér.
Ætlarðu þá að framvísa þessari vottun þegar þeir fara að gefa sig fram í hrönnum?
hmm …harus milioner yah? hmmmm ….. LOL
*typo* komen diatas “harus” bukan “hair” :))