Fór að hugsa um hvernig manneskja ég var í Indónesíu vs. hvernig manneskja ég er hér, og held ég hafi komist að því að ég sé með persónuleikaröskun á háu stigi eða hafi einfaldlega verið að ímynda mér þetta líf sem ég lifði.
Nokkur dæmi á muninum á IndóSöru og Dönsku/ÍslenskuSöru:
- IndóSara drekkur te, ekki kaffi
- IndóSara notar chilisósu á franskarnar, ekki tómatsósu
- IndóSöru finnst franskar ekkert spes, hrísgrjón eru betri
- Salmonella er lífsstíll, ekki sjúkdómur
- Þegar IndóSara fer að versla eyðir hún í mesta lagi 1000 krónum, og finnst það mikið
- IndóSara fer í moskuna og svo á munaðarleysingjaheimili með núðlur og ávexti, DanskaSara fer í mollið og svo á pizzastað og fær sér hamborgara
- IndóSara stendur sig ekkert alltof vel í skólanum, en guð minn góður hún er streetsmart!
- DanskaSara æfir fimleika, IndóSara æfir tennis
- DanskaSara hjólar í skólann á morgnana, IndóSöru er ekið þangað af einkabílstjóra fjölskyldunnar
- Ef DanskaSara nennir ekki að elda sér kjúkling endar hún á því að borða bara hafragraut, IndóSara eldar ekki, hún pantar bara mat hjá vinnukonunum
- IndóSara borðar mat beint af trjánum. Það gerir DanskaSara líka. ÍslenskaSara hefur smakkað barrnálar en fannst þær ekkert spes
- DanskaSara gengur í stígvélum og IndóSara í sandölum
- DanskaSara fer í frí til Árhús eða Íslands, IndóSara fer í frí til Bali
- IndóSara er hlynnt skírlífi fram að hjónabandi, DanskaSara… tja…
- DanskaSara býr í 12 fermetra herbergi með fátækum rúmenskum vefsíðuhönnuði, IndóSara býr í risastórri höll með sex manna fjölskyldu, 5 manna þjónustuliði, 3 kennurum og 30 drengjum á heimavist
- DanskaSara ætlar að verða læknir, IndóSara hafði ekki hugmynd um hvað hún ætlaði að gera við líf sitt
Indónesía virkar hreinlega eins og einhverskonar kanínuhola niður í Undraland þar sem klukkur ganga afturábak og brjálaðir hattarar drekka te úr botnlausum bollum…
good luck then … but ..saya tetap suka sarah dua duanya hahaha~
Kannast við þetta…
Dugar orðið kleyfhugi fyrir svona?
haha, og það er þess vegna sem við elskum þig öll :o)