Í síðustu viku fengu allir læknisfræði- og kírópraktíknemendurnir að fara niður í kjallara til að sækja beinakassa.
Í kjallaranum var margt forvitnilegt að sjá, meðal annars fjöldinn allur af kössum og beinagrindum og ein líkkista merkt danskri konu fæddri í kringum 1930. Á kistunni stóð meðal annars nafn og heimilisfang.
Við máttum velja um hvort við vildum fá plastbein eða alvöru bein nema ef maður vildi heldur fá plastbein þá var maður tekinn afsíðis og þjarmað hressilega að manni þangað til maður samþykkti að taka alvöru bein. Það kom ekki fyrir mig því ég ákvað strax að fá alvöru!
Beinin sem ég fékk er rúmlega hálf beinagrind sem er orðin vel slitin og notuð. Ég ákvað strax að þetta væri tékkneskur maður sem héti Pavel. Um leið og ég fékk Pavel ákvað ég að fara með hann heim og raða honum saman á gólfinu. Pavel er bara með hægri útlimi og hægra sett af rifbeinum.
Ég komst líka að því að Pavel er mjög sennilega kona því hann var bara örlítið hærri en ég. Nema Pavel sé frá 17. öldinni, þá hefur hann bara verið temmilega hávaxinn karlmaður.
Mér þykir vænt um Pavel. Ég skoða hann oft. Svo passa ég að læsa kassanum vel og vandlega á næturna svo ekkert sleppi nú út…
Sara mín … þú ert alvöru,.. með bein í nefinu. knus knus P
Bið að heilsa Pavelu.
þú ert rosa fyndin og mér þykir vænt um þig:)