Ég ákvað að rannsaka Pavel betur í gær og komst að því að hann hefur verið að villa á sér heimildir. Hann er í rauninni kvenmaður og heitir Pavlova!
Annars verða Íslendingar sennilega glaðir að heyra að hér rignir allan daginn.
Í kvöld fór ég á fyrirlestur um skurð- og fæðingarlækningar. Í pásunni notaði ég svo tækifærið og tók á móti einum fyrirbura sem sat fastur í fæðingadúkkunni og svo fékk ég prófa að skera nokkrar blöðrur úr móðurlífi með hátæknilegum töngum, minimyndavél og fjarstýrðu dóti.
Ég er að velta því fyrir mér hvað venjulegt fólk eiginlega gerir í frítíma sínum…
I’m ordinary people .. I just tweet and read a books in my spare time hihihi~