Ég er ekki búin að vera sérlega dugleg við að blogga upp á síðkastið þar sem ég hef verið upptekin við að kryfja litla gamla konu.
Lyktin í krufningaherberginu var töluvert verri í dag en í gær, og ég komst að því mér til mikillar skelfingar að það er gat á hægra stígvélinu mínu. Einnig, er að íhuga að gerast grænmetisæta þar til vikan er á enda.
En það myndu hvort sem er fæstir leggja sér til munns litlar gamlar konur svo að ég tel allt í lagi að halda áfram að fá sér stundum kjötflís með grænmetinu.
hihihi~ goodluck yah untuk kuliahnya. Jangan makan sedikit nanti gak seksi lagi LOL