Í dag er föstudagur. Danir elska föstudaga!
Ég vaknaði snemma í morgun til að fara frítt í sund í háskólanum. Sundlaugin var mjög köld svo ég fór bara í gufubað í staðinn. Í skólanum fengum við að kíkja inn í seinustu líkin og fundum meðal annars lungnakrabbamein, nýrnasteina á stærð við tíkall, græna gallblöðru og pínulitla þind. Svo fékk einn tutorinn líka að prófa nýju beinasögina og saga eina höfuðkúpu í sundur. Það var mjög gaman.
Eftir skóla ætlaði ég að vera rosalega mikið dugleg að læra og var nýsest niður þegar vinkona mín sendi mér skilaboð um að hún væri tilbúin með slackline í almenningsgarði hér rétt hjá. Svo ég dreif mig á hjólið og lærði að ganga á línu. Ég náði 3,5 skrefum þegar best lét og kom heim blá, marin, grútskítug og sæl. Ekki einusinni hitaskúrinn sem ég lenti í á leiðinni var mér til ama.
Svo er ég líka búin að kaupa frisbídisk og badmintonspaða. Vegna þess að ég er að læra fyrir próf. Og vegna þess að sólin bara skín og skín og skín og ég held að lífið gæti varla verið betra.
Bara á kafi í sportinu!
Hér skín sólin líka. Ég er sammála þér Sara, lífið gæti varla verið betra
have a nice day (always) then
Vó - var þetta allt saman að sama manninum?
Gangi þér vel í prófunum! Sólin og sumarið eru einmitt lent hérna á Íslandi, sem betur fer eru prófin búin þannig að sólbað er ekki lengur á bannlistanum;*