Þrem vikum, mörgum andvökunóttum, hundruðum kaffibolla og kílóavís af sælgæti eru prófin loksins búin. Og þar sem prófin eru búin hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að gera við sjálfa mig og þarafleiðandi er íbúðin tandurhrein, hjólið smurt, búið að búa til mat fyrir 10 manna veislu og fara í sturtu fjórum sinnum í dag og mér leiðist.
Tveggja mánaða sumarfrí er nú full gróft, ég er eiginlega að vonast til að hafa fallið á seinasta prófi svo ég hafi eitthvað að gera…
Spurning um að læra að slappa af?
Coba lebih menikmati hidupmu Sara
Kangen euy ! :))