Háskólamenntun

Í skólanum í gær fengum við heimavinnu. Venjulega snýst heimavinnan okkar um að teikna fjölskyldutré með tilliti til arfgengra sjúkdóma, hanna tilraunir til að kanna fósturgalla eða litningabreytingar eða skrifa um rannsóknaraðferðir.

Í gær var verkefnið öðruvísi. Við áttum að velja okkur stað, til dæmis lest, rútu, fjölfarna götu, verslun eða veitingastað. Þar áttum við að koma okkur fyrir með penna og skrifblokk og fylgjast með fólki í 15 mínútur. Við áttum að skrifa niður allt sem við sáum og okkur datt í hug.

Svo ég lagði leið mína í mollið (hentugt því mig bráðvantaði einmitt mintugrænt naglalakk) og setti mig í miðjuna. Um leið og ég tók upp skriffærin fór fólk að smástara á mig, laumulega þó, því enginn vill vera staðinn að því að glápa. Það voru aðallega börn sem horfðu opinmynnt á mig án þess að skammast sín neitt.

Hér er lítill hluti af því sem ég tók eftir:

  • Menn ganga að meðaltali hraðar en konur. Mun hraðar.
  • Flestir eru í svörtum yfirhöfnum.
  • Danskar stelpur eru oft klæddar svokölluðum UGG stígvélum.
  • Pör hafa oft auka kvenmann meðferðis.
  • Karlar hafa tilhneigingu til að halda á pokum kvennanna sem þeir eru með (hér geri ég ráð fyrir að þeir hafi ekki sjálfir verslað sér neitt í Vero Moda og nærfataverslunum).
  • Það fór enginn inn í Friis Company í 15 mínútur.
  • Maður með tvö börn starir inn í verslun á meðan annað barnið hleypur manískt um með risastóra plastskeið í munninum (hér íhugaði ég að skerast í leikinn og bjarga barninu frá meiðslum en fannst svo meira spennandi að halda rannsókn áfram og sjá hvað skeði).
  • Furðulegar hárgreiðslur eiga oft samleið með furðulegum fatastíl.
  • Kona gengur með manni en beygir skyndilega af leið til að þjóta inn í búð, maður tekur ekki eftir og talar við sjálfan sig í 20 metra áður en hann uppgötvar kvenmannshvarfið.
  • Ungt fólk sem gengur eitt er oftast upptekið í símanum.
Þegar hér var komið sögu var ljóshærð stúlka farin að gefa mér illa augað þar sem henni fannst ekki alveg nógu sniðugt að ég væri að skrifa eitthvað niður og horfa á hana á sama tíma svo ég ákvað að forða mér.

Endurkoma Hr. London

Glöggir lesendur kannast eflaust við hinn miður klóka hr. London sem ég minntist á í færslum frá febrúar, apríl og desember 2008.
Hann var ferðafélagi minn í tæpar tvær vikur á Indlandi og hýsti mig svo í London á leið minni heim.

Hann ákvað í byrjun febrúar að Danmörk væri ferðamannaparadís vetrarins (miður klókur-þar hafiði það) og um helgina kom hann svo í heimsókn til mín.

Það var skemmtilegt að rifja upp ferðasögur og skiptast á fréttum, og ekki nóg með það heldur fékk ég að vera ferðamaður í Odense í tvo daga! Húrra! Við skoðuðum fæðingarheimili H.C. Andersen, bjuggum til snjókisu fyrir framan járnbrautarstöðina, borðuðum pylsur og súkkulaðikökur, hjóluðum eins og brjálæðingar, fórum á sinfóníutónleika og í bíó og skemmtum okkur konunglega.

Fyrri morguninn sem hann var í heimsókn ákvað ég að baka amerískar pönnukökur en seinni morguninn splæsti hann í enskan morgunverð, og með fullri virðingu fyrir Englendingum, þá er enskur morgunverður miklu meira kvöldmatur en nokkuð annað! Það að hafa pulsufeiti drjúpandi úr munnvikunum og mallann fullan af kartöflum fyrir klukkan 10 á morgnana er ekki alveg minn tebolli!

Genetik

Nú erum við byrjuð í erfðafræðitímum og ef það veldur ekki heimþrá þá veit ég ekki hvað. Það er nefnilega alltaf verið að fjalla um litlu eyjuna norður í hafi þar sem allir íbúarnir eru einræktaðir, hjólbeinóttir búrar sem hafa engin samskipti haft við umheiminn í 1000 ár og eru því kjörnir sem rannsóknarefnir mann- og erfðafræðinga.

Í síðustu viku var kennarinn að segja frá því að hægt væri að kortleggja litninga okkar frá upprunastað. Þetta er hægt vegna þess að í gegnum milljónir ára hafa kyn (-og aðrir) litningar tekið á sig ýmsar breytingar í formi basapara sem skipta engu máli fyrir genatjáningu, en gefa hugmynd um skyldleika og uppruna. Basapararunurnar eru mislangar eftir því hvaðan litningurinn kemur upprunalega og hvaða leið hann fór í gegn um heiminn.

Nú jæja, einhverjum snillingi datt í hug að skoða Y-litning karlmanna frá Íslandi, og viti menn: íslenski Y-litningurinn kemur frá Noregi. Ekkert óvænt þar.

Þá var X litningur kvenna skoðaður. Og þar sem konur hafa tvo en karlar bara einn er einhver hluti X-litninga okkar kvenna sem hefur erfst í gegn um beinan kvenlegg frá frumkonunni, svo að segja.
En X-litningurinn okkar kom ekki frá Noregi, ó nei! Það var nefnilega þannig að þegar víkingunum datt það í hug að sigla yfir hafið og setjast að á skerinu í norðri sögðu norsku konurnar nei takk! Þær höfðu sko engan áhuga á þessari hættuför.

Svo Víkingarnir stoppuðu bara á miðri leið til Íslands til að pikka upp kvenfólk og þar af leiðandi erum við með X-litning frá Írlandi. Og hananú!

Karlar eru norskir, konur eru írskar. Gæti verið sjálfstætt framhald bókarinnar karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus.

Update

Jæja,

þá er ég komin með nýjan húsfélaga, og í þetta skipti er það rúmensk stelpa. Og hún talar ensku! Eeeen, hún kann ekki að hjóla!

Ég er besti sambýlingur í heiminum. Rökstuðningur: ég bakaði súkkulaðibitakökur í dag og ég á ryksugu, brauðrist og handþeytara!

Skólinn er byrjaður aftur en ég hlakka mest til að byrja í arabísku.

Ég notaði fríið mitt í síðustu viku til að vinna (stórt niðurgangstilfelli!), skoða tvær kirkjur og eitt safn, læra að búa til hummus, baka nokkrar mismunandi uppskriftir af muffins og horfa á sjónvarp. Aðallega horfa á sjónvarp. Það var indælt.

Stjörnuspáin mín

Fékk þessa stjörnuspá og hef að sjálfsögðu ákveðið að taka mark á henni. Enda tveir dagar í fyrsta próf:

Tvíburinn

Þú þarft á meiri hvíld og einveru að halda. Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur.

Og hananú! Held ég leggi mig…

Alein

Nú á ég svo sannarlega að vera djúpt sokkin í muninn á rauðum og gulum beinmerg fyrir prófin mín og þar af leiðandi er tilvalin stund til að gera allt annað. Til dæmis ryksuga hnífaparaskúffuna, baka muffins og blogga.

Það er helst í fréttum af Elmilundsveginum að Tyrkinn minn flutti út og snéri aftur til sinna heima, að mér skilst í Istanbúl.
Hún hefur skilið eftir stórt tóm í hjarta mér. Nú er skyndilega ekki lengur neinn til að vekja mig með háværri eldamennsku klukkan fjögur á morgnana eða bleyta allt eldhúsgólfið, -veggina og -loftið með því að vaska upp.

Mér telst svo til að hún hafi hnuplað frá mér einum gaffli, en í staðinn skilið eftir tvo gamla hnífa.

Í öðrum fréttum:

Þar sem næsta módúl (hálf önn) á að vera sérlega auðvelt ákvað ég að nú væri tíminn til að skrá sig á dönskunámskeið. Ég var komin með allar upplýsingar, komin með umsóknareyðublað í hendur og átti bara eftir að fylla út dálk fyrir námskeið þegar eitthvað kom yfir mig…

Ooooog í stað þess að byrja í dönsku er ég skráð í arabísku fyrir byrjendur. Byrja í febrúar :)

Árið 2009

Já, það er óhætt að segja að það hafi verið nánast ómögulegt að toppa árið 2008, en þrátt fyrir það er kannski ágætt að líta yfir farinn veg og sjá hvort ég hafi nú ekki gert eitthvað skemmtilegt í ár:

  1. Nám:
    Í janúar byrjaði ég í líffræði í Háskóla Íslands, og kláraði það eina önn með ágætis árangri.
    Sumarfríið var nýtt til að taka áfanga í eðlis- og stærðfræði, mér til mikils ama. Það gekk þó ágætlega.
    Í ágúst byrjaði ég svo í læknisfræði í fæðingarbæ H.C. Andersen í Danmörku.
  2. Vinna:
    Byrjaði árið atvinnulaus, en það rættist fljótlega úr því.
    Fyrst var ég að vinna í Háskólabíói, sem sérlegur poppafgreiðslumaður og miðasölustúlka.
    Næst fékk ég sumarvinnu á Búnaðarsambandi Suðurlands þar sem ég hellti upp á kaffi af mikilli list.
    Með vinnunni á BSSL var ég líka að vinna á bókasafninu á Selfossi.
    Þar sem það var ekki nóg var ég einnig skúringadama kvölds og helgar. Ekki furða að það sé atvinnuleysi í þessu landi, en það ætti að lagast núna.
    Í Baunalandi fékk ég vinnu á elliheimili og sem hálauna barnapía.
  3. Íþróttir:
    Eftirtaldar íþróttir stundaði ég í lengri eða skemmri tíma á árinu:
    Yoga pilates, skokk, magadans, afródans, body combat, blandaðir fimleikar, salsa, hjólreiðar, yoga og karlafimleikar.
    Og í Danmörku telst bjórdrykkja einnig með sem íþrótt. Þjóðaríþrótt.
  4. Sambýlingar:
    Byrjaði árið í faðmi foreldranna.
    Flutti svo inn með frænkunni í Reykjavík og átti þar mjög skrautlega þrjá mánuði.
    Eftir sumarið flutti ég til Danmerkur og bjó fyrstu þrjár vikurnar með þrem öðrum í 40 fermetra íbúð í anda fátækra Íslendinga.
    Flutti svo í íbúð og deildi klósetti og baði með einkar skítsælum og næturgöltrandi Tyrkja sem þvoði eldhúsborðin með hráum kjúklingum og skvetti vatni um gólf og veggi.
  5. Ástarmálin:
    Ha?
    Hefði átt að gerast lesbía þegar þess var kostur…
  6. Annað:
    Byrjaði að læra á gítar hjá Ungverja í Danmörku.
    Var nær dauða en lífi eftir misheppnaða efnafræðitilraun.
    Stöðvaði innbrotsþjóf.
    Lærði að hjóla um með vikuinnkaup, pakka af klósettpappír, skólatösku og heimilistæki allt í einu.
    Lærði að meta eplaskífur, flödebollur, glögg og dönskukennslu í grunnskólum.

Gleðilegt nýtt ár! Megi 2010 verða ennþá betra.

Og takið eftir því hvernig ég minntist ekki einu sinni á IceSave…

Jól

Gleðileg jól snúllurnar mínar!

Ég komst til Íslands rétt fyrir jólin eftir hörkupúl við að draga koffortið mitt gegn um snjóskafla og yfir ísilagðar götur Odense. Ég var búin að gera ráð fyrir seinkun á öllum stöðum, sem svo varð ekkert úr, svo ég endaði á því að mæta á flugstöðina mörgum, mörgum klukkutímum fyrir flug. Þar var ég heppin að vera með skólabækurnar í handfarangrinum :)

Hefnd

Í gær var ég í vinnunni og náði ekki að svara símanum þegar hann hringdi rétt fyrir klukkan 21. Þegar ég fékk svo pásu fór ég og kíkti á númerið, sem ég kannaðist ekki við, og ákvað að hringja til baka, það gæti jú vel verið að þetta hafi verið einhver úr bekknum að hringja út af jólaboðinu sem er á fimmtudaginn eða eitthvað þess háttar.

Svo ég hringdi til baka, kynnti mig og spurði hver hefði hringt. Hinum megin á línunni heyrðist ekkert nema lágvært más. Ég bað viðkomandi að tala örlítið hærra, enn heyrðist bara más. Eftir japl, jaml og fuður og þrábeiðni mína um hærri málróm sagði kauði loks:

,,(muml, más, hvísl) Sjúgðu hann!´´Svo ég lagði rólega á.

Og nú verð ég að viðurkenna að það sem kemur næst er einstaklega barnalegt, ég skammast mín næstum því fyrir að hafa lagst svo lágt. Ég legg það alls ekki í vana minn að gera svona lagað og mæli engan veginn með því.

En ég var með símanúmerið hans, og eitthvað varð ég nú að gera.

Svo ég fór á dating.dk og bjó til prófíl fyrir hávaxna, granna og íðilfagra konu sem hafði áhuga á eldri karlmönnum og klúrum símasamtölum. Og svo skrifaði ég símanúmerið hans undir. Hah!

Tæknilegir örðugleikar

Við vorum í fyrirlestir í dag um stofnfrumur og stofnfrumurannsóknir.

Fyrirlesarinn var einhver sérfræðingur í málinu sem var búinn að búa til rosalegt powerpoint show fyrir okkur en af einhverjum ástæðum var hann með stillingu á tölvunni sinni þannig að alltaf þegar hann fékk tölvupóst sendann í pósthólfið sitt kom upp gluggi með fyrirsögn póstsins og nafni sendanda.

Fyrst fékk hann tvö skeyti um jólahlaðborð sem hann á að mæta í í desember og eitt bréf um einhvern fund. Það var aðeins flissað í salnum enda hálfkjánalegt. Svo korteri fyrir lok tímans kom upp gluggi með:

Sender: Mikael Petersen
Subject: Swingerclub igen på fredag?

Ekki furða að við höfum öll gersamlega tryllst af hlátri!

Í öðrum fréttum:

Á föstudaginn var frí í skólanum svo ég sat heima að læra. Klukkan korter í fjögur heyrðist rosalegur hávaði úr portinu sem glugginn minn snýr að og ég byrjaði að bölva iðnaðarmönnum í sand og ösku.
Eftir nokkrar mínútur fór mér samt að finnast þetta dáldið grunsamlegt. Hér vinnur enginn svona lengi á föstudögum, sérstaklega ekki iðnaðarmenn!

Og viti menn, þegar ég kíkti út um gluggann var ungur maður í hettupeysu að reyna að brjóta upp glugga nágranna míns með kúbeini.

Ég barði á rúðuna hjá mér og öskraði á náungann sem leit á mig og hljóp svo í burtu.

Batman hvað?

« Prev - Next »